Upplýsingar um útibú og skoðunarferðir
Þér er hjartanlega velkomið að skoða skrifstofur okkar og prentsmiðjur. Hér færðu upplýsingar um hvar útibú okkar eru og hvenær hægt er að skoða þau.
Opnað fyrir skoðunarferðir á ný: Í mörgum löndum byrjuðum við aftur að bjóða upp á skoðunarferðir um deildarskrifstofur okkar þann 1. júní 2023. Hægt er að fá upplýsingar hjá deildarskrifstofunni sem þú vilt heimsækja. Við biðjum þig vinsamlegast að koma ekki ef þú greinist með COVID-19, ert með kvef- eða flensueinkenni eða hefur nýlega umgengist einhvern með COVID-19.
Suður-Afríka
Skoðunarferðir
Sýningar
Aðalgestamiðstöð. Nokkur myndbönd sýna okkur hvað gerist á bak við tjöldin á Betel og hvernig Betel styður tilbeiðslu okkar.
Gestamiðstöð prentsmiðju tvö. Myndbönd sýna fram á gildi þess að þýða og prenta rit á tungumál svæðisins. Hægt er að horfa yfir prentsmiðjuna frá sýningarpalli. Biblíusýning þar sem hægt er að sjá sögu nafns Guðs í Biblíunni á nokkrum tungumálum svæðisins.
Gestamiðstöð prentsmiðju þrjú. Sýningarpallur þar sem hægt er að sjá alla vöruflutningahæðina og upplýsingar um hvert á að senda ritin sem verið er að pakka. Myndbönd af byggingaframkvæmdum ríkissala og vinnslu á hljóðritum og myndböndum.
Frekari upplýsingar. Skutlrútur eru milli gestamiðstöðvanna. Gestir geta notið eigin nestis á gestasvæðinu.
Heimilisfang og símanúmer