Get ég fengið hughreystingu frá Biblíunni ef ég á við þunglyndi að stríða?
Svar Biblíunnar
Já, því að besta hjálpin kemur frá „Guði, sem uppörvar beygða.“ – 2. Korintubréf 7:6.
Guð hjálpar þunglyndum með því að veita þeim
Styrk. Guð „uppörvar“ þig ekki með því að fjarlægja öll vandamál þín, heldur bænheyrir hann þig þegar þú biður um styrk til að takast á við þau. (Filippíbréfið 4:13) Þú getur treyst því að hann vilji hlusta á bænir þínar, því Biblían segir: „Jahve er nálægur þeim, sem hafa sundurmarið hjarta, þeim, er hafa sundurkraminn anda, hjálpar hann.“ (Sálmur 34:19, Biblían 1908) Guð heyrir meira að segja ákall þitt jafnvel þótt þú getir ekki lýst tilfinningum þínum með orðum. – Rómverjabréfið 8:26, 27.
Góð fordæmi. Einn biblíuritaranna sagði í bæn til Guðs: „Úr djúpinu ákalla ég þig.“ Þessi sálmaritari tókst á við þunglyndi sitt með því að hafa hugfast að Guð þjakar okkur ekki með sektarkennd. Þess vegna sagði hann við Guð í bæn: „Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum, Drottinn, hver fengi þá staðist? En hjá þér er fyrirgefning svo að menn óttist þig.“ – Sálmur 130:1, 3, 4.
Von. Auk þess að veita okkur huggun nú lofar Guð jafnframt að fjarlægja öll vandamál sem leiða til þunglyndis. Þegar hann uppfyllir þetta fyrirheit þá verður „hins fyrra [þar með talið þunglyndi] ... ekki minnst framar og það skal engum í hug koma.“ – Jesaja 65:17.
Athugið: Þótt vottar Jehóva trúi því að Guð veiti hjálp, þá leita þeir sér líka læknishjálpar við veikindum eins og alvarlegu þunglyndi. (Markús 2:17) En við mælum hinsvegar ekki með einni læknismeðferð umfram aðra; við lítum svo á að það sé hvers og eins að ákveða slíkt.