SÖNGUR 130
Fyrirgefum fúslega
-
1. Guð í gæsku sinni
Jesú gaf sem lausnargjald.
Syndir gat þá fyrirgefið,
afmáð gráðugt dauðans vald.
Ef við iðrumst einlæglega
sakaruppgjöf veitir hann.
Því á grunni lausnargjaldsins
náðar Guð hvern syndarann.
-
2. Líkn við fáum líka
ef við líkjumst Guði vel.
Verum fljót að fyrirgefa,
sýnum fús slíkt hugarþel.
Langlynd umberum hvert annað,
viljum engan særa reið.
Sýnum öðrum aðeins kærleik,
hún er ágætust sú leið.
-
3. Ræktum meiri miskunn
því að mikil er sú dyggð.
Okkur hatri gegn hún gætir,
eyðir gremju, sorg og hryggð.
Ef við gjarnan fyrirgefum
okkar Guði líkjumst við.
Viljum ást Guðs endurspegla,
Drottins yndi’ að veita grið.
(Sjá einnig Matt. 6:12; Ef. 4:32; Kól. 3:13.)