SÖNGUR 129
Reynumst þolgóð
-
1. Get ég haldið út
því Jesús varaði við neyð?
Gegnum kvalirnar
hann sá þá gleði sem hans beið.
Guðs loforð, Guðs andi
var hjálpin er hann leið.
(VIÐLAG)
Við skulum reynast þolgóð
og vinna trúarverk.
Guðs ást gefur þann eldmóð
sem þurfum til að vera trú og sterk.
-
2. Ár sem líða hjá
oft færa sorgir eða kvöl.
Gegnum tregatár
við sjáum líf sem á er völ.
Að marki því keppum,
þar verður ekkert böl.
(VIÐLAG)
Við skulum reynast þolgóð
og vinna trúarverk.
Guðs ást gefur þann eldmóð
sem þurfum til að vera trú og sterk.
-
3. Gefumst aldrei upp,
ótta og efa vísum frá.
Trúföst þjónum við
þar til við launin munum fá.
Við skulum því þrauka,
já, endamarki ná.
(VIÐLAG)
Við skulum reynast þolgóð
og vinna trúarverk.
Guðs ást gefur þann eldmóð
sem þurfum til að vera trú og sterk.
(Sjá einnig Post. 20:19, 20; Jak. 1:12; 1. Pét. 4:12-14.)