Prófaðu þetta
Lærum ‚andleg ljóð‘ okkar utan að
„Þegar ég berst við lágt sjálfsálit fæ ég hvatningu frá Jehóva í tónlistarmyndböndunum í Sjónvarpi Votta Jehóva.“ –Lorraine, Bandaríkjunum.
‚Andleg ljóð‘ hafa alltaf verið hluti af tilbeiðslu kristinna manna. (Kól. 3:16) Ef þú lærir þessi söngva utan að geta þeir hjálpað þér þegar þú hefur ekki söngbók eða snjalltæki við hendina. Prófaðu eftirfarandi ráð til að auðvelda þér að læra þá utan að.
Lestu textann vandlega til að skilja merkingu hans. Það er auðveldara að muna texta þegar maður skilur merkingu hans. Textarnir fyrir alla söngva okkar, þar á meðal tónlistarmyndböndin og barnasöngvana, eru aðgengilegir á jw.org. Þú finnur þá undir BÓKASAFN og Tónlist.
Skrifaðu söngtextana á blað. Þegar þú gerir það festir þú trúlega orðin betur í minni. – 5. Mós. 17:18.
Æfðu þig upphátt. Lestu eða syngdu söngvana aftur og aftur.
Rifjaðu upp. Reyndu að rifja upp orðin án þess að horfa á textann og kíktu svo til að sjá hvernig þér tókst til.