Sálmur 51:1–19
Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð þegar Natan spámaður kom til hans eftir að Davíð hafði haft kynmök við Batsebu.+
51 Sýndu mér velvild, Guð, vegna þíns trygga kærleika,+afmáðu afbrot mín vegna þinnar miklu miskunnar.+
2 Þvoðu mig hreinan af sekt minni+og hreinsaðu mig af synd minni+
3 því að ég veit að ég hef brotið af mérog synd mín þjakar mig stöðugt.*+
4 Gegn þér hef ég syndgað fyrst og fremst,*+ég hef gert það sem er illt í þínum augum.+
Þú ert því réttlátur þegar þú talar,dómur þinn er réttur.+
5 Ég hef verið sekur frá því að ég fæddistog syndugur frá því að ég var getinn í móðurlífi.+
6 Þú hefur velþóknun á hreinskilni hjartans,+kenndu mínum innri* manni sanna visku.
7 Hreinsaðu mig af synd minni með ísóp svo að ég verði hreinn,+þvoðu mig svo að ég verði hvítari en snjór.+
8 Láttu mig heyra fögnuð og gleðisvo að beinin sem þú sundurkramdir taki gleði sína á ný.+
9 Snúðu augliti þínu frá syndum mínum+og afmáðu öll afbrot mín.+
10 Guð, skapaðu í mér hreint hjarta+og gefðu mér nýjan og stöðugan anda.+
11 Kastaðu mér ekki burt frá augliti þínuog taktu ekki heilagan anda þinn frá mér.
12 Leyfðu mér að gleðjast aftur yfir björgun þinni,+vektu með mér löngun til að hlýða þér.*
13 Ég vil kenna lögbrjótum vegi þína+svo að syndarar snúi aftur til þín.
14 Frelsaðu mig frá blóðskuld,+ Guð, þú sem frelsar mig,+svo að tunga mín geti boðað réttlæti þitt með fögnuði.+
15 Jehóva, opnaðu varir mínarsvo að munnur minn geti lofað þig.+
16 Þú vilt ekki sláturfórn, annars myndi ég færa þér hana.+
Þú kærir þig ekki um brennifórn.+
17 Fórnir sem Guð kann að meta eru iðrunarfullur andi.
Guð, þú hafnar* ekki hjarta sem er brotið og kramið.+
18 Gerðu vel við Síon því að þú ert góður,endurreistu múra Jerúsalem.
19 Þá muntu gleðjast yfir réttlætisfórnum,brennifórnum og alfórnum,þá verður nautum fórnað á altari þínu.+
Neðanmáls
^ Eða „er stöðugt frammi fyrir mér“.
^ Orðrétt „Gegn þér, þér einum, hef ég syndgað“.
^ Eða „hulda“.
^ Orðrétt „styddu mig með fúsum anda“.
^ Eða „fyrirlítur“.