Sálmur 33:1–22

  • Skaparinn lofaður

    • „Syngið nýjan söng fyrir hann“ (3)

    • Jehóva skapaði allt með orði sínu og anda (6)

    • Hamingjusöm þjóð Jehóva (12)

    • Vökul augu Jehóva (18)

33  Fagnið yfir Jehóva,+ þið réttlátir,það hæfir hjartahreinum að lofa hann.   Þakkið Jehóva með hörpuleik,syngið honum lof og leikið undir á tístrengja hljóðfæri.   Syngið nýjan söng fyrir hann,+leikið listilega á strengina og hrópið af gleði.   Orð Jehóva er satt og rétt+og við getum treyst öllu sem hann gerir.   Hann elskar réttlæti og réttvísi,+öll jörðin ber vitni um tryggan kærleika Jehóva.+   Með orði Jehóva voru himnarnir gerðir,+með anda* munns hans allt sem í þeim er.*   Hann safnar saman vatni hafsins eins og með stífluvegg,+lætur ólgandi vötnin í forðabúr.   Öll jörðin óttist Jehóva,+allir jarðarbúar sýni honum lotningu   því að hann talaði – og allt varð til,+gaf fyrirmæli – og það stóð þar.+ 10  Jehóva hefur ónýtt ráðagerðir þjóðanna,+gert áform þeirra að engu.+ 11  En ákvarðanir Jehóva standa að eilífu,+áform hjarta hans kynslóð eftir kynslóð. 12  Sú þjóð er hamingjusöm sem á Jehóva að Guði,+fólkið sem hann kaus að gera að eign sinni.+ 13  Jehóva lítur niður af himni,hann sér hvert einasta mannsbarn.+ 14  Frá bústað sínumvirðir hann fyrir sér alla jarðarbúa. 15  Hann mótar hjörtu allra mannaog fylgist grannt með verkum þeirra.+ 16  Fjölmennur her bjargar engum konungi+né miklir aflsmunir kappanum.+ 17  Hesturinn vekur falska von um sigur,*+kraftar hans tryggja ekki undankomu. 18  Augu Jehóva vaka yfir þeim sem óttast hann,+þeim sem vona á tryggan kærleika hans, 19  til að frelsa þá frá dauðaog halda lífinu í þeim í hungursneyð.+ 20  Við bíðum Jehóva með eftirvæntingu,hann er hjálp okkar og skjöldur.+ 21  Hjörtu okkar fagna yfir honumþví að við treystum á hans heilaga nafn.+ 22  Tryggur kærleikur þinn hvíli yfir okkur, Jehóva,+meðan við bíðum eftir hjálp þinni.+

Neðanmáls

Eða „andardrætti“.
Orðrétt „allur þeirra her“.
Eða „björgun“.