Sálmur 28:1–9

  • Sálmaskáldið fær bænheyrslu

    • „Jehóva er styrkur minn og skjöldur“ (7)

Eftir Davíð. 28  Til þín hrópa ég stöðugt, Jehóva, klettur minn,+hunsaðu mig ekki. Ef þú svarar mér enguverð ég eins og þeir sem fara niður í djúp jarðar.*+   Heyrðu grátbeiðni mína þegar ég hrópa til þín á hjálpog lyfti höndum mínum í átt að innsta herberginu í helgidómi þínum.+   Dragðu mig ekki fyrir dóm með illvirkjum og skaðræðismönnum,+þeim sem tala vingjarnlega við náunga sinn en hafa illt í hyggju.+   Launaðu þeim eftir verkum þeirra,+eftir afbrotum þeirra. Refsaðu þeim fyrir verk handa þeirra,fyrir allt sem þeir hafa gerst sekir um,+   því að þeim stendur á sama um verk Jehóva,+öll handaverk hans.+ Hann rífur þá niður og reisir þá ekki aftur við.   Lofaður sé Jehóvaþví að hann hefur heyrt grátbeiðni mína.   Jehóva er styrkur minn+ og skjöldur,+hjarta mitt treystir á hann.+ Hann hefur hjálpað mér og hjarta mitt fagnar. Þess vegna lofa ég hann í söng.   Jehóva er styrkur þjóð sinni,hann er vígi sínum smurða og bjargar honum.+   Frelsaðu þjóð þína og blessaðu eign þína.+ Vertu hirðir hennar og berðu hana að eilífu í fangi þér.+

Neðanmáls

Eða „gröfina“.