Sálmur 27:1–14
Eftir Davíð.
27 Jehóva er ljós mitt+ og frelsari,hvern ætti ég að óttast?+
Jehóva er vígi lífs míns,+hvern ætti ég að hræðast?
2 Þegar illvirkjar réðust á mig til að gleypa mig+voru það andstæðingar mínir og óvinir sem hrösuðu og féllu.
3 Þótt herlið setjist um migóttast hjarta mitt ekki,+þótt stríð brjótist út gegn mérer ég samt öruggur.
4 Um eitt hef ég beðið Jehóva,og það þrái ég:
að ég fái að búa í húsi Jehóva alla ævidaga mína+til að horfa á yndisleik Jehóvaog dást að* musteri* hans.+
5 Hann felur mig í skjóli sínu á degi neyðarinnar+og geymir mig í leynum í tjaldi sínu,+lyftir mér upp á háan klett.+
6 Nú ber ég höfuðið hátt gagnvart óvinum mínum sem umkringja mig.
Ég vil færa fórnir í tjaldi hans og hrópa af gleði,lofa Jehóva í söng.*
7 Hlustaðu, Jehóva, þegar ég kalla,+vertu mér góður og svaraðu mér.+
8 Í hjarta mínu minnist ég orða þinna:
„Leitið auglits míns.“
Ég vil leita auglits þíns, Jehóva.+
9 Hyldu ekki auglit þitt fyrir mér,+vísaðu ekki þjóni þínum burt í reiði.
Þú ert hjálp mín,+farðu ekki frá mér og yfirgefðu mig ekki, Guð minn og frelsari.
10 Jafnvel þótt faðir minn og móðir yfirgæfu mig+tæki Jehóva mig að sér.+
11 Vísaðu mér veg þinn, Jehóva,+leiddu mig um stíg réttlætisins vegna óvina minna.
12 Framseldu mig ekki í hendur andstæðinga minna+því að ljúgvitni hafa risið gegn mér+og hótað mér ofbeldi.
13 Hvar væri ég ef ég tryði ekkiað ég fengi að njóta góðvildar Jehóva eins lengi og ég lifi?*+
14 Vonaðu á Jehóva,+vertu hugrakkur og sterkur.*+
Já, vonaðu á Jehóva.
Neðanmáls
^ Eða „velta fyrir mér“.
^ Eða „helgidómi“.
^ Eða „með tónlist“.
^ Eða hugsanl. „Ég trúi því staðfastlega að ég fái að sjá góðvild Jehóva í landi lifenda“.
^ Eða „sterkur í hjarta“.