Sálmur 107:1–43

  • Þakkið Guði fyrir undraverk hans

    • Hann leiddi þá á réttan veg (7)

    • Hann svalaði þorsta hinna þyrstu og mettaði hungraða (9)

    • Hann leiddi þá út úr myrkri (14)

    • Hann gaf skipun og læknaði þá (20)

    • Hann verndar fátæka fyrir kúgun (41)

107  Þakkið Jehóva því að hann er góður,+tryggur kærleikur hans varir að eilífu.+   Þetta segi þeir sem Jehóva endurheimti,*þeir sem hann endurheimti úr hendi* andstæðingsins+   og safnaði saman frá löndunum,+frá austri og vestri,*frá norðri og suðri.+   Þeir reikuðu um óbyggðirnar, um eyðimörkina. Þeir fundu ekki leið til borgar þar sem þeir gátu búið.   Þeir voru svangir og þyrstir,þeir voru máttfarnir og úrvinda.   Þeir hrópuðu til Jehóva í neyð sinni,+hann bjargaði þeim úr raunum þeirra.+   Hann leiddi þá á réttan veg+svo að þeir komust til borgar þar sem þeir gátu búið.+   Fólk þakki Jehóva+ fyrir tryggan kærleika hansog undraverk hans í þágu mannanna+   því að hann svalaði þorsta hinna þyrstuog mettaði hina hungruðu með góðri fæðu.+ 10  Sumir bjuggu í dýpsta myrkri,fangar í eymd og járnum. 11  Þeir höfðu risið gegn orði Guðs,þeir lítilsvirtu leiðsögn Hins hæsta.+ 12  Hann auðmýkti þá hjörtu þeirra með mótlæti,+þeir hrösuðu og enginn var til að hjálpa þeim. 13  Þeir kölluðu á hjálp Jehóva í neyð sinni,hann bjargaði þeim úr raunum þeirra. 14  Hann leiddi þá út úr djúpu myrkrinuog sleit af þeim fjötrana.+ 15  Fólk þakki Jehóva fyrir tryggan kærleika hans+og undraverk hans í þágu mannanna. 16  Hann hefur mölvað koparhliðinog brotið slagbrandana úr járni.+ 17  Þeir voru heimskir og þjáðust+vegna synda sinna og afbrota.+ 18  Þeir misstu alla matarlyst,þeir nálguðust dauðans dyr. 19  Þeir kölluðu á hjálp Jehóva í neyð sinni,hann bjargaði þeim úr raunum þeirra. 20  Hann gaf skipun og læknaði þá+og bjargaði þeim úr gröfinni sem þeir höfðu fallið í. 21  Fólk þakki Jehóva fyrir tryggan kærleika hansog undraverk hans í þágu mannanna. 22  Þeir skulu færa þakkarfórnir+og segja frá verkum hans með gleðiópi. 23  Þeir sem sigla á skipum um hafiðog stunda verslun á höfunum miklu,+ 24  þeir hafa séð verk Jehóvaog undraverk hans í djúpinu,+ 25  hvernig stormur skellur á við skipun hans+svo að öldur hafsins rísa. 26  Þeir rísa himinháttog steypast niður í djúpið. Þeir missa kjarkinn því að ógæfan vofir yfir. 27  Þeir riða og slaga eins og drukkinn maður,öll kunnátta þeirra er til einskis.+ 28  Þá hrópa þeir til Jehóva í neyð sinni+og hann bjargar þeim úr raunum þeirra. 29  Hann stillir storminnog öldur hafsins lægir.+ 30  Sjómennirnir fagna þegar þær kyrrastog hann leiðir þá til þeirrar hafnar sem þeir þrá. 31  Fólk þakki Jehóva fyrir tryggan kærleika hansog undraverk hans í þágu mannanna.+ 32  Fólkið upphefji hann í söfnuðinum+og lofi hann í ráði* öldunganna. 33  Hann breytir fljótum í eyðimörk,vatnslindum í skrælnaða jörð+ 34  og frjósömu landi í saltsléttu+vegna illsku fólksins sem býr þar. 35  Hann breytir eyðimörkinni í sefgrónar tjarnirog lætur uppsprettur myndast í þurru landi.+ 36  Hann lætur hina hungruðu setjast þar að+svo að þeir geti reist borg til að búa í.+ 37  Þeir sá í akra og planta víngarða+sem gefa ríkulega uppskeru.+ 38  Hann blessar þá og þeim fjölgar mjög,hann lætur ekki nautgripum þeirra fækka.+ 39  En fólkinu fækkar á ný,það verður niðurlægt vegna kúgunar, ógæfu og sorgar. 40  Hann eys fyrirlitningu yfir tignarmennog lætur þá reika um veglaus öræfi.+ 41  En hann verndar hina fátæku fyrir* kúgun+og gerir fjölskyldur þeirra eins fjölmennar og sauðahjörð. 42  Réttlátir sjá það og fagna+en allir ranglátir þagna.+ 43  Sá sem er vitur veitir því athygli+og hugleiðir vandlega tryggan kærleika Jehóva.+

Neðanmáls

Eða „endurleysti“.
Eða „undan valdi“.
Eða „frá sólarupprás og sólsetri“.
Orðrétt „sæti“.
Eða „hefur hina fátæku hátt yfir“, það er, utan seilingar.